Fotbolti.net
08.07.17 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Inter kaupir Skriniar á 20 milljónir (Staðfest)

Skriniar í leik gegn Inter. Sækir að Icardi.

Skriniar í leik gegn Inter. Sækir að Icardi.

Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur keypt varnarmanninn Milan Skriniar frá Sampdoria. Talið er að kaupverðið sé 20 milljónir evra.

Skriniar hefur skrifað undir fimm ára samning við Inter.

Þetta eru fyrstu stóru kaupin sem Inter gerir í sumar, en nágrannar þeirra í AC Milan, hafa á meðan farið hamförum á markaðnum.
Skriniar lék 35 leiki fyrir Sampdoria á síðasta tímabili og varð í leiðinni yngsti varnarmaðurinn í sögu Seríu A til að leika það mikið af leikjum á einu tímabili. Hann er 22 ára.

Hann byrjaði alla leikina hjá U-21 árs liði Slóvakíu á EM og hann var í kjölfarið valinn í lið mótsins.

📣✍️ Official: Milan #Skriniar has signed for Inter on a 5-year contract https://t.co/2voj0picoZ #WelcomeSkriniar #InterIsComing #FCIM pic.twitter.com/6xAgJdHov4

— F.C. Internazionale (@Inter_en) July 7, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.