08.07.17 - 09:00
Bergur Tareq Tamimi
Jeremy Mathieu til Sporting Lisabon (Staðfest)

Farinn til Portúgal.

Mynd: Getty Images

Farinn til Portúgal.

Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Jeremy Mathieu hefur gengið til liðs við Sporting Lissabon í Portúgal.
Mathieu kemur til Sporting frá spænska stórliðinu Barcelona en þar hefur hann leikið með þeim frá árinu 2014.
Mathieu skrifaði undir tveggja ára samning við Sporting en hann er 33 ára að aldri.
Mathieu átti eitt ár eftir af samningi sínum við Barcelona en Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, hafði ekki lýst yfir neinum áhuga á að halda Frakkanum hjá félaginu.
Mathieu hefur spilað 62 deildarleiki með Barcelona og skoraði í þeim 3 mörk.