08.07.17 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neves dýrastur í sögu Wolves (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolves hefur keypt miðjumanninn Ruben Neves frá Porto á metfé. Hann er orðinn dýrastur leikmaður í sögu félagsins.
Neves, sem er tvítugur, kemur til Wolves fyrir 15,8 milljónir punda.
Hann skrifaði undir fimm ára samning og mun vinna með knattspyrnustjóranum Nuno Espirito Santo aftur, en þeir unnu saman hjá Porto á síðasta tímabili.

Nuno, sem tók við Wolves á dögunum, hefur ekki bara fengið Neves frá Porto, því varnarmaðurinn Willy Boly er einnig kominn til Wolves frá Porto á lánssamningi út tímabilið.
„Mig hefur alltaf langað til þess að spila á Englandi og við erum með gott lið,\" sagði Neves við heimasíðu Wolves.
Með Wolves leikur Jón Daði Böðvarsson, en hann er að fara inn í sitt annað tímabil með félaginu.