Fotbolti.net
08.07.17 - 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Yaya Sanogo til Toulouse (Staðfest)

Sanogo fagnar hér sjaldséðu marki.

Sanogo fagnar hér sjaldséðu marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Yaya Sanogo er genginn í raðir Toulouse í Frakkland, en samningur hans var ekki endurnýjaður hjá Arsenal.

Sanogo, sem skoraði bara eitt mark yfir fjögu tímabil hjá Arsenal, skrifaði undir þriggja ára samning við Toulouse í gær.
Tími hans í Lundúnum var ekki góður. Hann var fjórum sinnum lánaður frá Arsenal, en tókst hvergi að sanna sig.

Hann snýr nú aftur heim og mun spila með Toulouse á næsta tímabili.

Toulouse endaði í 13. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, en fyrsti leikurinn hjá Sanogo og félögum verður gegn meisturunum í Mónakó þann 4. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.