Fotbolti.net
08.07.26 - 18:17
Ívan Guðjón Baldursson

Quenda í Chelsea fyrir 40 milljónir (Staðfest)

Quenda í Chelsea fyrir 40 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur staðfest kaup á Geovany Quenda sem kemur úr röðum Sporting CP í Portúgal.
Gengst undir læknisskoðun hjá Chelsea í dag
TENGT EFNI

Gengst undir læknisskoðun hjá Chelsea í dag

Chelsea greiðir 40 milljónir punda fyrir Quenda sem er 19 ára kantmaður. Hann gerir átta ára samning við félagið, til sumarsins 2034.

Quenda hefur skorað 11 mörk í 30 leikjum með yngri landsliðum Portúgal og kom að 15 mörkum í 32 leikjum með Sporting á síðustu leiktíð.

Chelsea og Sporting komust að samkomulagi um félagaskipti Quenda í mars í fyrra.

Chelsea krækti í Marco Palestra fyrr í glugganum eftir að hafa náð samkomulagi um kaup á Emmanuel Emegha í fyrra, en hann er nýlega kominn til Chelsea úr röðum systurfélagsins Strasbourg.

Quenda í Chelsea fyrir 40 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.