
Sverrir eftir sigur: Hélt að þetta yrði einn af þeim


Mynd: Youtube skjáskot


Mynd: Youtube skjáskot
Sverrir Þór Kristinsson, aðstoðarþjálfari KFA, var til viðtals eftir 3-2 sigur KFA á Augnabliki í 16-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolti.net og var að vonum ánægður með að vera kominn áfram í bikarnum.
„Bara léttleiki að hafa landað þessu.“
Hvernig var tilfinningin þegar Augnablik náði að jafna, svona í ljós þess að KFA var búið að vera mikið betri aðillin fram að því?
„Maður hélt að þetta yrði svona einn af þeim þar sem að við erum að skapa fullt og náum ekki að nýta það og fáum það svo í bakið. En við sluppum sem betur fer.“
Javier og Jawed komu inn á fyrir KFA með 8 mínútna millibili ásamt Ólafi Bernharði.
„Toppmenn og skiluðu sínu vel.“
Markmiðið er að komast á Laugardalsvöll.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

