08.08.16 - 20:12
Ívan Guðjón Baldursson
Andre Ayew til West Ham (Staðfest)
Kemur á metfé

Gylfi fær ekki að spila með Ayew lengur.

Mynd: Getty Images

David Gold, annar eigenda West Ham United, er búinn að staðfesta komu Andre Ayew til félagsins.
Ayew, sem er 26 ára, kemur frá Swansea og er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning, en hann átti frábært tímabil í fyrra og var vafalaust besti leikmaður Swansea á tímabilinu.

Ayew skoraði 12 mörk í 34 deildarleikjum eftir að hafa komið frítt. Hamrarnir greiða rúmlega 20 milljónir punda fyrir Ayew sem er metfé fyrir félagið.
Ayew bætist í hóp öflugra sóknartengiliða sem eru þegar hjá West Ham og það verður áhugavert að sjá hann spila með Dimitri Payet á tímabilinu.