08.08.16 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Elías Már til IFK Gautaborg á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Sænska félagið IFK Gautaborg hefur fengið framherjann Elías Má Ómarsson á láni frá Valerenga út þetta tímabil.
Gautaborg á einnig forkaupsrétt á Elíasi eftir tímabilið.

Að sögn Ólafs Garðarssonar umboðsmanns Elíasar, höfðu 8 félög í Noregi áhuga á að fá hann í sínar raðir sem og fleiri félög í Svíþjóð.
Elías Már, sem er í U21 árs landsliði Íslands, hefur ekki átt fast sæti í liði Valerenga á þessu tímabili.
Elías kom til Valerenga fyrir síðasta tímabil frá uppeldisfélagi sínu Keflavík.
Gautaborg er í 4. sæti í sænsku úrvalsdeildinni en Elías á að hjálpa liðinu í toppbaráttunni þar. Hjálmar Jónsson er á mála hjá Gautaborg en Hjörtur Hermannsson lék einnig með liðinu á láni í nokkra mánuði fyrr á árinu.