08.08.16 - 18:24
Hafliði Breiðfjörð
Jón Ragnar Jónsson í FH að nýju (Staðfest)

Jón Ragnar er kominn í FH að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Jón Ragnar er kominn í FH að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Söngvarinn Jón Ragnar Jónsson hefur tekið fram skóna að nýju og er í leikmannahópi FH gegn KR í Pepsi-deildinni í kvöld.
Jón Ragnar tilkynnti í vetur að hann hafi lagt skóna á hilluna til að einbeita sér að tónlistarferli sínum.
Jón Ragnar á allt í allt 212 leiki með FH í öllum keppnum og hefur skorað í þeim eitt mark. Bakvörðurinn á einnig leiki með Þrótti en hann hefur verið langstærsta hluta ferilsins hjá FH.
Jón var mjög sigursæll hjá FH en með hann innanborðs.
FH hefur verið að missa út varnarmenn en Pétur Viðarsson og Sonni Ragnar Nattestad hafa yfirgefið félagið í bili og belgíski hægri bakvörðurinn Jonathan Hendrickx er meiddur. Jón Ragnar er því á leikskýrslu í kvöld í treyju númer 3.
Leikur FH og KR hefst klukkan 19:15 á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu.