Fotbolti.net
08.08.16 - 23:45
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Paul Pogba til Manchester United (Staðfest)

Pogba er mættur aftur til Manchester United.

Pogba er mættur aftur til Manchester United.

Canon

Mynd: Manchester United

Manchester United hefur staðfest kaupin á franska miðjumanninum Paul Pogba en hann kemur til félagsins frá Juventus á 89 milljónir punda.

Pogba er um leið dýrasti leikmaður sögunnar en hann slær bæði Gareth Bale og Cristiano Ronaldo við.

Hinn 23 ára gamli Pogba skrifaði undir fimm ára samning við Manchester United með möguleika á árs framlengingu til viðbótar.

Þessi félagaskipti hafa legið í loftinu í allt sumar en þau voru loks staðfest seint í kvöld, eftir að staðfest var að Pogba hefði komist í gegnum læknisskoðun hjá United í dag.

Pogba var í unglingaliði Manchester United áður en hann fór til Juventus árið 2012. Eftir að hafa orðið ítalskur meistari fjögur ár í röð þá er Pogba mættur aftur á Old Trafford.
„Ég er ánægður með að koma aftur til United. Þetta er félag sem hefur alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu og ég hlakka til að vinna með Jose Mourinho,\" sagði Pogba.

Mourinho er einnig spenntur fyrir því að vinna með Pogba næstu árin hjá Manchester United.

„Paul er einn af bestu leikmönnum í heimi og hann verður í lykilhlutverki í United liðinu sem ég vil byggja upp hér til framtíðar,\" sagði Mourinho.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem United kynnir Pogba til sögunnar.

REUNITED: https://t.co/VFkDJ05zuf #POGBACK https://t.co/y68rpT0dob

— Manchester United (@ManUtd) August 8, 2016

Paul Pogba. 🙌 #POGBACK pic.twitter.com/NhHjhWx5XT

— Manchester United (@ManUtd) August 9, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.