08.08.17 - 10:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Jermaine Pennant í ensku 8. deildina (Staðfest)

Pennant í leik með Liverpool á sínum tíma

Mynd: Getty Images

Jermaine Pennant, sem lék með Arsenal og Liverpool hefur gengið til liðs við Billericay Town en félagið leikur í 8. deildinni í Englandi.
Pennant, sem er 34 ára gamall var einnig að mála hjá Watford, Leeds, Birmingham og Stoke m.a. en hann yfirgaf Bury í maí síðastliðin.
Félagið tilkynnti einnig að Kevin Foley, fyrrum leikmaður Wolves og írska landsliðsins væri kominn til félagsins.
Þessir fyrrum leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hitta aðra fyrrum leikmenn úrvalsdeildarinnar því Paul Konchesky, fyrrum leikmaður Liverpool og Jamie O\'Hara, fyrrum leikmaður Tottenham leika með Billericay.
Eigandi Billericay, Glenn Tamplin segist vera búinn að eyða um 2 milljónum punda í félagið síðan í desember 2016 og að markmiðið sé að koma félaginu upp í ensku deildarkeppnina á fimm árum en þá þarf félagið að komast upp um þrjár deildir.