Fotbolti.net
08.08.17 - 18:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Mario Lemina til Southampton (Staðfest)

Mario Lemina er genginn í raðir Southampton

Mario Lemina er genginn í raðir Southampton

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur fengið til liðs við sig miðjumanninn Mario Lemina frá Juventus. Lemina er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Dýrlingana í sumar en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.
Þessi 23 ára landsliðsmaður Gabon hefur verið í tvö ár í herbúðum Juventus en ekki fengið mikið af tækifærum. Hann vann ítölsku deildina og bikarinn bæði árin og spilaði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar núna í vor.

„Mario er mjög hæfileikaríkur og hefur nú þegar unnið mikið á sínum stutta ferli. Hann er mjög leikreyndur miðað við aldur og spilað á stærsta sviði evrópska fótboltans,\" sagði Les Reed, stjórnarmaður hjá Southampton í samtali við heimasíðu félagsins.

„Að fjárfesta í leikmanni eins og Mario og kaupa hann frá jafn stóru félagi og Juventus er, er ákveðin yfirlýsing frá klúbbnum. Mario á bestu árin sín fram undan og við trúum því að hann verði frábær styrking fyrir félagið, bæði núna og í framtíðinni,\" bætti hann við.

#SaintMario! 😇#SaintsFC is delighted to announce the signing of @LeminaM_13 on a five-year contract from @juventusfc! pic.twitter.com/zlrO70kIo7

— Southampton FC (@SouthamptonFC) August 8, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.