08.08.18 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Adama Traore til Wolves á metfé (Staðfest)

Traore í baráttunni.

Mynd: Getty Images

Traore í baráttunni.

Mynd: Getty Images
Wolves hefur keypt kantmanninn Adama Traore frá Middlesbrough á 18 milljónir punda.
Um var að ræða riftunarverð á samningi Traore hjá Middlesbrough en þessi 22 ára gamli leikmaður er nú sá dýrasti í sögu Wolves.
Traore er eldlfljótur og leikinn með boltann en hann var langt á undan öllum öðrum leikmönnum í Championship deildinni á síðasta tímabili þegar kom að því að leika á andstæðinga.
Oft kemur hins vegar lítið út úr hlutunum hjá Traore en hann skoraði ekki mark í 27 leikjum í úrvalsdeildinni á þarsíðasta tímabili og á síðasta tímabili skoraði hann fimm mörk í Championship.
Úlfarnir vonast til að fá fleiri mörk frá Traore í úrvalsdeildinni á komandi tímabili en hann gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Everton á laugardaginn.