Fotbolti.net
08.08.18 - 21:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kepa Arrizabalaga til Chelsea á metfé (Staðfest)

Bætir met Alisson og er dýrasti markvörður sögunnar.

Arrizabalaga er kominn til Chelsea. Hann er dýrastur í sögu félagsins og dýrasti markvörður sögunnar.

Arrizabalaga er kominn til Chelsea. Hann er dýrastur í sögu félagsins og dýrasti markvörður sögunnar.

Canon

Mynd: Chelsea

Chelsea er búið að staðfesta kaup á spænska markverðinum Kepa Arrizabalaga frá Athletic Bilbao.
Kepa skrifaði undir sjö ára samning við Chelsea en félagið greiðir fyrir hann 71 milljón punda. Hann er dýrasti markvörður sögunnar og bætir metið sem Alisson setti fyrr í sumar þegar Liverpool greiddi fyrir hann 67 milljónir punda.

Arrizabalaga fyllir í skarð Thibaut Courtois sem verður kynntur hjá Real Madrid á morgun.

„Svo margir hlutir heilluðu mig við félagið, allir titlarnir, hinir leikmennirnir, borgin, enska úrvalsdeildin,\" sagði Kepa eftir að hann skrifaði undir.

Courtois fer til Real Madrid fyrir 35 milljónir punda en Chelsea fær miðjumanninn Mateo Kovacic á láni frá Real Madrid sem hluta af þeim félagaskiptum.

Kepa is a Chelsea player! 👊#WelcomeKepa pic.twitter.com/Tt2kLIOqU8

— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 8, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.