Fotbolti.net
08.08.18 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Pjaca til Fiorentina (Staðfest)

Pjaca í leik með Juventus.

Pjaca í leik með Juventus.

Canon

Mynd: Getty Images

Króatíski kantmaðurinn Marko Pjaca er genginn í raðir Fiorentina frá Ítalíumeisturum Juventus.
Pjaca kemur til Fiorentina á lánssamningi út tímabilið. Fiorentina mun geta keypt hann á 20 milljónir evra næsta sumar.

Pjaca, sem er 23 ára gamall, var á láni hjá þýska félaginu Schalke á síðustu leiktíð en hann á aðeins sjö leiki að baki fyrir Juventus. Hann kom til Juventus frá Dinamo Zagreb árið 2016 en meiðsli komu í veg fyrir að hann fengi tækifæri með Juventus.

Pjaca var í landsliðshópi Króatíu á HM og kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum gegn Frakklandi. Króatía tapaði leiknum 4-2.

Sjá einnig:
Mirallas lánaður til Fiorentina (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.