Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. ágúst 2019 08:20
Magnús Már Einarsson
Albian Ajeti til West Ham (Staðfest)
Mynd: West Ham
West Ham hefur keypt framherjan Albian Ajeti frá Basel en talið er að kaupverðið sé í kringum átta milljónir punda.

Hinn 22 ára gamli AJeti skrifaði undir fjögurra ára samning við Basel með möguleika á árs framlengingu.

Ajeti hefur skorað 37 mörk með Basel síðan hann kom til félagsins frá St Gallen fyrir tveimur árum.

„Um leið og ég heyrði af áhuga West Ham þá hugsaði ég mig ekki tvisvar um að ganga til liðs við svona stórt og sögufrægt félag í ensku úrvalsdeildinni," sagði Ajeti.

Framherjar West Ham hafa ekki skilað nægilega mikið af mörkum undanfarin tímabil en félagið keypti einnig fyrr í sumar Sebastien Haller frá Frankfurt og miklar vonir eru bundnar við hann.

Athugasemdir
banner
banner
banner