08.08.19 - 20:23
Brynjar Ingi Erluson
Alex Iwobi til Everton (Staðfest)

Alex Iwobi í leik með nígeríska landsliðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton er búið að festa kaup á nígeríska leikmanninum Alex Iwobi en hann kemur frá Arsenal. Everton rétt náði að senda pappírana á tilsettum tíma.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 40 milljónir punda, en hann er þar með næstdýrasti leikmaðurinn í sögu Everton á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni sem kostaði 45 milljónir punda fyrir tveimur árum.
Everton var lengi á eftir Wilfried Zaha en ákvað á endanum að snúa sér að Iwobi þar sem Crystal Palace vildi ekki selja Zaha.
Iwobi er 23 ára gamall landsliðsmaður Nígeríu en hann hefur leikið 100 deildarleiki með Arsenal og skorað ellefu mörk.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Everton fær í sumar. Áður hafði Everton fengið markvörðinn Jonas Lössl, bakvörðinn Djibril Sidibe, miðjumennina Andre Gomes, Fabian Delph og Jean-Philippe Gbamin, og sóknarmanninn Moise Kean.

✅ Creativity
— Everton (@Everton) August 8, 2019
✅ Flair
✅ Youth
✍️ Signed, sealed, delivered!
Never in doubt, @alexiwobi! 😅 #EFC