Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 15:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal lánar Nketiah til Leeds (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur lánað sóknarmanninn efnilega Eddie Nketiah til Leeds í Championship-deildinni.

Hjá Leeds mun hann fá góðan skóla hjá Marcelo Bielsa.

Nketiah, sem er tvítugur, mun leika með Leeds út leiktíðina. Í tilkynningu segist Leeds hafa unnið mikla baráttu um sóknarmanninn.

Nketiah á að baki 19 leiki fyrir aðallið Arsenal í öllum keppnum og hefur hann skorað þrjú mörk í þessum leikjum.

Leeds hóf Championship-deildina á því að vinna Bristol City 3-1 á útivelli.

Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum

Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner