08.08.19 - 19:31
Brynjar Ingi Erluson
Bobby Reid og Harrison Reed lánaðir í Fulham (Staðfest)

Joe Bryan og Bobby Reid eru sameinaðir á ný

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Fulham hefur fengið enska framherjann Bobby Reid á láni frá Cardiff City út þetta tímabil.
Reid er 26 ára gamall og uppalinn hjá Bristol City en hann yfirgaf félagið á síðasta ári til að spila með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni.
Hann skoraði 5 mörk í 29 leikjum á síðasta tímabili en er nú mættur til Fulham á láni út tímabilið.
Þar hittir hann æskuvin sinn, Joe Bryan, en þeir spiluðu saman hjá Bristol City.
Harrison Reed kemur þá á láni frá Southampton en hann er 24 ára gamall miðjumaður. Hann var á láni hjá Blackburn Rovers á síðustu leiktíð.
Fulham hefur því fengið sex leikmenn í sumar en félagið hefur einnig fengið Josh Onomah, Anthony Knockaert, Harry Arter og Ivan Cavaleiro.