Brighton var að fá franska hægri bakvörðinn Romaric Yapi frá Paris Saint-Germain.
Yapi er aðeins 19 ára gamall og mun hann koma inn í U23 lið Brighton til að byrja með.
Hann skrifar aðeins undir eins árs samning, en félagið hefur möguleika á því að framlengja það um eitt ár.
Yapi hefur yfir síðustu tvö tímabil komið við sögu í níu leikjum með unglingaliði PSG í Evrópukeppni unglingaliða.
Brighton hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardag gegn Watford.
Smelltu hér til að sjá öll helstu tíðindin á gluggadeginum
Taktu þátt í umræðunni á Twitter með því að nota #fotboltinet
Athugasemdir