Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. ágúst 2019 13:36
Magnús Már Einarsson
Cameron Wickers til Stoke á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Stoke hefur fengið varnarmanninn Cameron Carter-Vickers á láni frá Tottenham.

Hinn 21 árs gamli Carter-Vickers er frá Bandaríkjunum en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í aðalliði Tottenham.

Carter-Vickers er nú á leið aftur í Championship deildina á láni en hann hefur áður spilað þar með Sheffield United, Ipswich Town og Swansea.

Á síðasta tímabili spilaði Carter-Vickers 33 leiki þegar hann var á láni hjá Swansea.
Athugasemdir
banner
banner