Cardiff City í ensku B-deildinni hefur fengið til sín Marlon Pack frá Bristol City. Hann gerir þriggja ára samning.
Pack er 28 ára gamall miðjumaður en hann lék með Bristol City í sex ár áður en hann ákvað að fara í dag til erkifjendur félagsins í Cardiff City.
Hann skoraði 12 mörk í 272 leikjum fyrir Bristol City en aðeins 70 kílómetrar eru á milli Bristol og Cardiff.
Bristol City hefur styrkt sig vel á miðjunni fyrir komandi tímabil og var því lítið pláss fyrir Pack.
Pack hittir fyrrum tvo fyrrum félaga hjá Bristol City en það eru þeir Bobby Reid og Aden Flint.
Athugasemdir