Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. ágúst 2019 16:10
Magnús Már Einarsson
Danny Drinkwater til Burnley (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Burnley hefur fengið miðjumanninn Danny Drinkwater á láni frá Chelsea þangað til í janúar.

Hinn 29 ára gamli Drinkwater kom til Chelsea frá Leicester sumarið 2017 en hefur ekki náð að festa sig í sessi.

Drinkwater spilaði tólf leiki í ensku úrvalsdeildinni á fyrra tímabili sínu hjá Chelsea en á síðasta tímabili kom hann ekkert við sögu í deildinni.

Sean Dyche, stjóri Burnley, hefur byggt hóp sinn að mestu upp á breskum leikmönnum og hann ákvað að fá Drinkwater fyrir átökin í vetur.

Félögin áttu í viðræðum í gær og í dag um skiptingu á launagreiðslum Drinkwater og samningar náðust áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 16:00.



Athugasemdir
banner
banner
banner