Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 08. ágúst 2019 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dennis Praet í Leicester (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Leicester náði að ganga frá kaupum á belgíska miðjumanninum Dennis Praet.

Hann kemur frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Sampdoria á 18 milljónir punda.

Hinn 25 ára gamli Praet skrifaði undir fimm ára samning við Leicester.

Hann á þrjá landsleiki fyrir Belgíu, en hann hefur leikið 237 leiki í efstu deildum Belgíu og Ítalíu.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Leicester fær í sumar á eftir varnarmanninum James Justin frá Luton, miðjumanninum Youri Tielemans frá Mónakó og sóknarmanninum Ayoze Perez frá Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner
banner