Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. ágúst 2019 16:07
Magnús Már Einarsson
Scott Carson til Manchester City (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur fengið markvörðinn reynda Scott Carson á láni frá Derby út tímabilið.

Manchester City vildi fá þriðja markvörð til að vera Ederson og Claudio Bravo til halds og trausts eftir að Arijanet Muric fór til Nottingham Forest á láni.

Hinn 33 ára gamli Carson varð fyrir valinu en hann á langan feril að baki í enska boltanum.

Carson hefur meðal annars spilað með Liverpool, Charlton, Aston Villa, WBA, Wigan og Derby á ferli sínum.

Englandsmeistaranir sjá um að borga laun hans en Derby mun ekki fá neina greiðslu að öðru leyti fyrir lánssamninginn.

Athugasemdir
banner
banner
banner