fim 08. ágúst 2019 15:39
Magnús Már Einarsson
Sessegnon til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt kantmanninn Ryan Sessegnon frá Fulham á 25 milljónir punda.

Kaupverðið gæti hækkað upp í 30 milljónir punda síðar meir en miðjumaðurinn Josh Onomah fer einnig til Fulham sem hluti af samningnum.

Hinn 19 ára gamli Sessegnon skrifaði undir fimm ára samning hjá Tottenham.

Sessegnon sló ungur í gegn með Fulham en hann getur bæði spilað sem vinstri kantmaður og bakvörður.

Tottenham er einnig að fá miðjumanninn Giovani Lo Celso frá Real Betis en þau félagaskipti ættu að klárast innan tíðar.
Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner