Arsenal hefur keypt vinstri bakvörðinn Kieran Tierney frá Celtic á 25 milljónir punda.
Tierney er 22 ára gamall vinstri bakvörður en hann hefur verið á óskalista Arsenal í allt sumar.
Arsenal byrjaði á að bjóða 15 milljónir punda í Tierney í júní en samningar eru nú í höfn.
Tierney hefur verið í stóru hlutverki hjá Celtic undanfarin ár og fimm sinnum landað skoska meistaratitlinum með liðinu.
Að auki er Arsenal að fá varnarmanninn David Luiz frá Chelsea á átta milljónir punda.
He's here...
— Arsenal (@Arsenal) August 8, 2019
Welcome to The Arsenal, @kierantierney1 👋
🏴 #TimeForTierney pic.twitter.com/oGJQ5BIIrY
Athugasemdir