Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 08. ágúst 2022 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daníel fór með varaliði Midtjylland til Portúgals
Mynd: Midtjylland
Daníel Freyr Kristjánsson var í lok júní keyptur til danska félagsins FC Midtjylland frá uppeldisfélaginu Stjörnunni.

Daníel er sextán ára gamall unglingalandsliðsmaður sem lék með U19 ára liði Midtjylland á móti á dögunum. Þar stóð Daníel sig vel og ferðaðist í kjölfarið með varaliði félagsins til Portúgals.

U19 mótið var haldið í Þýskalandi og lék Midtjylland við Freiburg, Villarreal og Schalke. Þetta voru fyrstu leikir hans með Midtjylland.

Varaliðið ferðaðist svo með aðalliðinu þegar það mætti Benfica í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðustu viku.

Varaliðið lék æfingaleik gegn aðalliði Mafra sem spialr í næstefstu deild í Portúgal og lék Daníel síðustu tuttugu mínúturnar. Þokkalegt ævintýri í upphafi ferilsins hjá Midtjylland.
Athugasemdir
banner
banner
banner