Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. ágúst 2022 08:45
Elvar Geir Magnússon
Rabiot orðaður við Man Utd
Rabiot er 27 ára og hefur spilað 129 leiki fyrir Juventus og skorað sex mörk.
Rabiot er 27 ára og hefur spilað 129 leiki fyrir Juventus og skorað sex mörk.
Mynd: EPA
The Athletic segir að Manchester United íhugi að gera tilboð í franska miðjumanninn Adrien Rabiot hjá Juventus en hann á eitt ár eftir af samningi sínum í Tórínó.

Franski landsliðsmaðurinn er einn launahæsti leikmaður Juventus með 7 milljónir evra í árslaun. Hann kom til Juve frá PSG 2019.

Manchester United fór af stað í ensku úrvalsdeildinni um helgina með því að tapa fyrir Brighton. Félagið er í leit að liðsstyrk og Erik ten Hag vill efla miðsvæðið.

United hefur reynt í allt sumar að landa Frenkie de Jong frá Barcelona.

Ef Juventus selur Rabiot verður liðið nokkuð þunnskipað á miðsvæðinu þar sem Paul Pogba og Weston McKennie verða báðir á meiðslalistanum næstu vikurnar.

Rabiot er 27 ára og hefur spilað 129 leiki fyrir Juventus og skorað sex mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner