08.10.16 - 15:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rafn Markús og Snorri Már taka við Njarðvík (Staðfest)

Við undirskrift

Mynd: Heimasíða Njarðvíkur

Við undirskrift

Mynd: Heimasíða Njarðvíkur
Rafn Markús Vilbergsson og Snorri Már Jónsson hafa verið ráðnir þjálfarar Njarðvíkur í 2. deild karla, en þeir skrifuðu undir tveggja ára saming nú í morgun. Þeir eru báðir vel þekktir innan félagsins enda heimamenn og leikið og þjálfað hjá félaginu áður.
Þeir taka við liðinu af Guðmundi Steinarssyni, sem hafði stýrt liðinu síðustu þrjú árin. Guðmundur var látinn taka pokann sinn undir lok þessa tímabils og þá var Rafn Markús ráðinn tímabundið, en hann hefur nú tekið alfarið við liðinu með Snorra Má Jónssyni.

Rafn Markús á að baki 179 leiki með meistaraflokki Njarðvíkur. Hann kom fyrst til liðsins sumarið 2005 og samhliða því að leika með meistaraflokki, var hann yfirþjálfari yngri flokka. Þá var hann þjálfari meistaraflokks Víðis í Garði í tvö tímabil, en kom svo aftur síðastliðinn vetur til Njarðvíkur og var í leikmannahópi liðsins á nýafstöðnu keppnistímabili, ásamt því að þjálfa liðið síðasta mánuðinn.
Snorri Már kom fyrst til Njarðvíkur keppnistímabilið 1994 og á hann að baki alls 172 leiki með meistaraflokki. Snorri Már hóf þjálfaraferilinn sem þjálfari 2. flokks hjá Njarðvík árið 2009 og hefur einnig þjálfað yngri flokka hjá félaginu árin 2014 og 2015. Snorri Már þjálfaði meistaraflokk Reynis Sandgerði 2011 og meistaraflokk kvenna hjá Keflavík 2012. Nú síðast þjálfaði Snorri Már 2. flokk Hauka í Hafnafirði.
Þeir munu nú taka saman við Njarðvík, en liðið endaði í áttunda sæti 2. deildar karla í sumar.