Brynjar Gestsson mun þjálfa Þrótt V. í 2. deild karla á næsta tímabili en hann krotaði undir samning í kvöld.
Brynjar er vel kunnugur Þrótturum en hann stýrði liðinu upp í 2. deild árið 2017 áður en hann ákvað að fara í Breiðholtið og taka við ÍR-ingum.
Eiginkona Brynjar lést eftir langvinn veikindi og tók hann því sér frá frá störfum áður en hann hætti með ÍR í apríl.
Brynjar hefur einnig þjálfað Fjarðabyggð, Víði, Þrótt R. og Huginn.
Úlfur Blandon hætti með Þrótt Vogum undir lok síðasta tímabils og var kynnt í kvöld að Brynjar væri nýr þjálfari liðsins.
Liðið hafnaði í 5. sæti í 2. deild með 30 stig á tímabilinu sem var að ljúka.
Athugasemdir