Liverpool gæti nýtt sér ákvæði í samningi Semenyo- Ungur miðjumaður á blaði hjá Liverpool og Man Utd - West Ham vill Strand Larsen
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
Kiddi Jóns framlengir - Var í viðræðum við annað félag
Jóladagatalið: Elínborg gaf viðtal í sturtu eftir leik
Fer yfir næstu skref á Laugardalsvelli - „Setjum mikla pressu á þetta“
Jóladagatalið: Hugleysingjar dauðans
Jóladagatalið: Eiður Smári gekk út úr viðtali
   þri 08. október 2019 14:30
Sverrir Örn Einarsson
Kári Árna: Þurfum að spila þetta svolítið eins og í æfingaleiknum
Icelandair
Kári í leiknum gegn Frökkum í mars síðastliðnum.
Kári í leiknum gegn Frökkum í mars síðastliðnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er verðugt verkefni. Þetta er besta lið í heimi. Við höfum sýnt að það getur allt gerst á heimavelli og við ætlum að koma 100% stemmdir í þennan leik," segir landsliðsmaðurinn Kári Árnason um leikinn sem er framundan gegn Frakklandi á föstudagskvöld.

Ísland tapaði 5-2 gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum EM og 4-0 í undankeppni EM fyrr á árinu. Í fyrra skildu liðin jöfn 2-2 í æfingaleik í Guingamp í Frakklandi.

„Þetta er hörkulið og erfitt að stoppa það. Við höfum ekki náð að stoppa þá áður. Við þurfum að spila þetta svolítið eins og í æfingaleiknum í Frakklandi. Við vorum komnir í 2-0 þar og vorum klaufar að klára það ekki. Sjálfstraustið var þannig að þetta hékk allt saman og gekk mjög vel. Þetta er spurning um að halda þeim dampi."

Kári tognaði aftan í læri gegn Albaníu fyrir mánuði síðan en hann náði að snúa aftur í lið Víkings í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar um mánaðarmótin.

„Það var mjög mikilvægt. Ég setti stefnuna alltaf á að ná 1-2 leikjum til að komast í betra stand fyrir þessa leiki," sagði Kári.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir