Fotbolti.net
08.11.12 - 15:31
Magnús Már Einarsson

Þorsteinn Gunnarsson tekur við Þrótti Vogum (Staðfest)

Marteinn Ægisson formaður knattspyrnudeildar og Þorsteinn við undirritun samningsins.

Marteinn Ægisson formaður knattspyrnudeildar og Þorsteinn við undirritun samningsins.

Canon

Mynd: Þróttur Vogum

Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar Vogum. Þorsteinn var aðstoðarþjálfari HK í sumar en hann mun nú þjálfa Þrótt í 4. deildinni næsta sumar.
„Þetta er spennandi verkefni, metnaðarfull stjórn og aðstaðan virkilega góð. Framundan er áframhaldandi uppbyggingarstarf og það verður gaman að leggja sitt af mörkum,“ sagði Þorsteinn eftir að hann skrifaði undir samning við Þrótt.

Þorsteinn er 46 ára Vestmannaeyingur, búsettur í Grindavík. Hann lék á sínum tíma með ÍBV og hefur víðtæka reynslu innan knattspyrnuhreyfingarinnar á ýmsum vígstöðvum.

Áður en Þorsteinn var ráðinn aðstoðarþjálfari HK var hann formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur í þrjú ár og samhliða því markmannsþjálfari hjá félaginu. Þorsteinn þjálfaði um árabil í Vestmannaeyjum og gerði 2. flokk kvenna að Íslandsmeisturum auk þess að þjálfa meistaraflokk kvenna og 2. og 3. flokk karla. Þá var hann framkvæmdastjóri félagsins um tíma.

Þorsteinn, sem hefur lokið UEFA B – þjálfaraprófi, var einnig íþróttafréttamaður hjá Stöð 2 í tæpan áratug.

„Við hjá Þrótti Vogum erum hæst ánægð að fá Þorstein til starfa enda er hann búinn að vera tengdur knattspyrnunni síðustu árin frá öllum vígstöðum og unnið með mörgum reynslumiklum þjálfurum. Þróttur Vogum spilar í 4. deildinni í sumar og það er skemmtilegt tímabil framundan,“ segir Marteinn Ægisson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar Vogum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.