08.11.16 - 19:15
Þorsteinn Haukur Harðarson
Ásgeir Aron ráðinn aðstoðarþjálfari ÍR (Staðfest)

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR
Ásgeir Aron Ásgeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari ÍR en frá þessu var greint á Facebook síðu félagsins í dag.
Hin 30 ára gamli Ásgeir hefur lengst af leikið með Fjölni en þá hefur hann einnig spilað Meistaraflokksleiki með HK og ÍBV áður en hann var ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Gróttu í fyrra.
Tilkynningu ÍR má sjá hér að neðan
Ásgeir Aron Ásgeirsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá ÍR, en hann gerði tveggja ára samning við félagið í dag.
Ásgeir er uppalinn í KR, en hann hóf síðan feril sinn í meistaraflokki með Fjölni árið 2006 og spilaði með þeim til ársins 2009 í efstu deild og 1. deild. Ásgeir hefur síðan leikið með ÍBV og HK svo eithvað sé nefnt, en hann lék síðan aftur með Fjölni þangað til að hann gerðist spilandi aðstoðarþjálfari hjá Gróttu sumarið 2016.
Stjórn knattspyrnudeildar lýsir yfir mikilli ánægju með að fá Ásgeir til ÍR.\"