Fotbolti.net
08.11.16 - 13:19
Hafliði Breiðfjörð

Kaj Leó til ÍBV (Staðfest)

Kaj Leó í leik með FH í sumar.

Kaj Leó í leik með FH í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

ÍBV hefur staðfest að færeyski kantmaðurinn Kaj Leó í Bartalsstovu sé genginn í raðir félagsins.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV og kemur frá FH þar sem hann spilaði í sumar.

Hann er 25 ára gamall landsliðsmaður Færeyja sem hefur spilað með félagsliðum í heimalandinu auk Noregs og Rúmeníu áður en hann kom til Íslands.

Kaj Leó gekk í raðir FH í lok júlí í sumar og spilaði 6 leiki í Pepsi-deildinni. Félagið tilkynnti svo eftir mót að hann yrði ekki áfram.

Kristján Guðmundsson tók við þjálfun ÍBV eftir að tímabilinu lauk en eftir að Bjarni Jóhannsson hafði látið af störfum í ágúst tóku Ian Jeffs og Alfreð Elías Jóhannsson við út tímabilið.

Kaj Leó er fyrsti leikmaðurinn sem Kristján nælir í til félagsins.

„ Kaj Leó er öflugur kantmaður og er mikil eftirvænting að fá þennan „frænda“ okkar til Eyja og klæðast ÍBV treyjunni næsta sumar,\" segir í tilkynningu ÍBV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.