08.11.16 - 13:55
Ívan Guðjón Baldursson
Kolbeinn Kárason framlengir við Leikni R. (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Kolbeinn Kárason er búinn að framlengja samning sinn við Leikni R. eftir tveggja ára veru hjá félaginu.
Kolbeinn skoraði 7 mörk í 21 leik í deild og bikar er Leiknir endaði í 7. sæti Inkasso-deildarinnar í sumar.
Kolbeinn skoraði 7 mörk í 21 leik í deild og bikar er Leiknir endaði í 7. sæti Inkasso-deildarinnar í sumar.
Kolbeinn lék með Val í Pepsi-deildinni frá 2011 til 2014 og hefur hann verið mikilvægur hlekkur í liði Leiknis á tíma sínum þar.
Kolbeinn er 25 ára gamall og hefur gert 30 mörk í 108 leikjum á ferlinum samkvæmt vefsíðu KSÍ.
Kolbeinn er 25 ára gamall og hefur gert 30 mörk í 108 leikjum á ferlinum samkvæmt vefsíðu KSÍ.
