Fotbolti.net
08.11.16 - 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Málfríður Erna aftur í Val (Staðfest)

Málfríður Erna er á leiðinni í Valstreyjuna á nýjan leik.

Málfríður Erna er á leiðinni í Valstreyjuna á nýjan leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Málfríður Erna Sigurðardóttir hefur skrifað undir eins ár samning við Val.

Hún þekkir vel til á Híðarenda en hún lék með liðinu á árunum 2000 - 2014 en hún hefur verið hjá Breiðabliki undanfarin tvö tímabil en þar varð hún bæði Íslands og bikarmeistari.
Málfríður hefur leiktið 176 leiki fyrir Val og skorað í þeim 24 mörk.

„Ég fór úr Val fyrir tveimur árum til að prófa eitthvað nýtt á ferlinum og ég átti tvö frábær ár hjá Breiðablik og sé ekki eftir því að hafa farið.

„Hins vegar togaði Valshjartað mig aftur á Hlíðarenda og mig langaði alltaf að klára ferilinn hjá mínu uppeldisfélagi sem mér þykir svo vænt um. Það skemmir ekki fyrir heldur að börnin mín æfa hjá yngri flokkum Vals.

„Leikmannahópurinn er fyrsta flokks og hér eru margar frábærar fótboltakonur. Það mun styrkja liðið klárlega að Dóra María verður með frá byrjun og Elín Metta verður með allt tímabilið. Það er mikil samkeppni um flestar ef ekki allar stöður sem er bara gott. Þjálfarateymið þekki ég þó ekki mikið en eftir fund með Úlfi leist mér vel á hans hugmyndir og hans eldmóð fyrir starfinu. Þetta mun klárlega smitast til leikmannahópsins.

„Ég var inn og út úr fótbolta vegna barneigna síðast þegar ég var í Val. Síðustu tvö ár í Breiðablik voru hins vegar góð bæði fyrir liðið og fyrir mig persónulega. Við unnum tvo titla og fengum á okkur fæstu mörkin í deildinni bæði árin.

„Ég mun klæðast stolt rauðu treyjunni á nýjan leik og bið stuðningsmenn um að styðja við bakið á liðinu og hjálpa okkur að fá bikar aftur á Hlíðarenda,\" sagði Málfríður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.