08.11.16 - 22:17
Þorsteinn Haukur Harðarson
Nikolaj Hansen áfram í Val (Staðfest)

Nikolaj Hansen verður áfram hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Nikolaj Hansen verður áfram hjá Val.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Danski framherjinn Nikolaj Hansen hefur gert tveggja ára samning við Val. Hansen er kominn til landsins og mun því vera með liðinu allt undirbúningstímabilið.
Þessi 23 ára leikmaður lék með liðinu á síðasta tímabili en hann var virkilega óheppinn með meiðsli. Hann fékk höfuðhögg í upphafi móts og náði ekki að klára tímabilið vegna meiðsla.
Alls lék hann 11 leiki með liðinu í deild og bikar og skoraði hann sex mörk fyrir Valsmenn.
„Það er gott að vera í Val. Stefnan er sett hærra á næsta tímabili og við viljum vinna þá titla sem í boði eru,\" sagði Hansen í viðtali á heimasíðu Vals.
„Allt fólkið í félaginu hefur tekið mér mjög vel og það er gaman að fara á æfngar. Liðið sýndi það á síðasta tímabili að það er hörku gott og við ætlum að vinna það sem er í boði. Ég ætla að spila sem mest og skora mörk. Núna er langt undirbúningstímabil framundan og ég ætla að vera hér í vetur og spila og gera mig kláran fyrir komandi tímabil.\"
„Fyrsta tímabilið mitt á Íslandi var erfitt vegna tveggja meiðsla. Mér fannst ánægjulegt að spila í Evrópudeildinni og svo var bikartitilinn ævintýri. Þetta var ánægjuleg reynsla. Hinsvegar er á hreinu að ég mun koma mun sterkari til baka núna,\" sagði Daninn, Nikolaj Hansen.