08.11.16 - 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Osasuna rekur stjórann sinn (Staðfest)

Enrique Martin er atvinnulaus.

Mynd: Getty Images

Enrique Martin er atvinnulaus.

Mynd: Getty Images
Osasuna hefur rekið Enrique Martin, stjóra liðsins en þeir eru í næstneðsta sæti spænsku deildarinnar.
Liðið tapaði gegn Alaves um helgina og hafa þeir sjö stig eftir 11 leiki og eru þrem stigum frá öruggu sæti í deildinni.
Hinn 60 ára gamli Martin spilaði 250 leiki fyrir félagið frá 1977 til 1988 en hann hefur þríveigis þjálfað Osasuna.
Hann tók við þeim í mjög slæmum málum í næstefstu deild og rétt náði hann að bjarga þeim frá falli á sinni fyrstu leiktíð. Hann kom þeim svo upp um deild, fyrsta heila tímabilið sem stjóri félagsins.