Fotbolti.net
08.11.16 - 15:19
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Stefano Pioli tekinn við Inter (Staðfest)

Stefano Pioli tekinn við Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta að Stefano Pioli er tekinn við félaginu eftir hrikalega byrjun undir stjórn Hollendingsins Frank de Boer.

Inter er um miðja deild og aðeins með þrjú stig eftir fjórar umferðir í Evrópudeildinni og sá stjórn Inter ekkert annað í stöðunni heldur en að reka þjálfarann.
Pioli er mikils metinn á Ítalíu eftir góðan árangur með Bologna og Lazio undanfarin fimm ár, en hann sagði upp samningi sínum við Lazio til að taka við Inter.

Pioli er búinn að skrifa undir samning sem rennur út 30. júní 2018, en Marcelino og Gianfranco Zola komu einnig til greina fyrir starfið.

Fyrsti leikur Inter undir stjórn Pioli er gegn erkifjendunum og nágrönnunum í AC Milan, en síðasti leikur hans með Lazio var 4-1 tap gegn erkifjendunum og nágrönnunum í AS Roma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.