08.11.16 - 14:43
Ívan Guðjón Baldursson
Vilhjálmur Pálmason endurnýjar við Þrótt R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Vilhjálmur Pálmason er búinn að endurnýja samning sinn við Þrótt Reykjavík og er því samningsbundinn uppeldisfélaginu næstu tvö árin.
Vilhjálmur á 139 leiki að baki fyrir Þrótt og er þekktur fyrir að vera meðal fljótari leikmanna íslenska boltans.

Vilhjálmur er 25 ára gamall en á þrátt fyrir það sjö tímabil að baki með meistaraflokki Þróttar.
„Það var lykilatriði að fá Vilhjálm með okkur í slaginn og við settum endurnýjun samnings við hann í algjöran forgang. Við erum afskaplega hreyknir af kappanum eins og öðrum Þrótturum, en auðvitað þykir okkur alltaf vænst um heimamenn. Þá sem hafa gefið félaginu allt sem þeir eiga og spilað með okkur frá blautu barnsbeini,\" sagði Haraldur Agnar Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar Þróttar.
„Vilhjálmur er hokinn af reynslu og hefur verið reglulega í úrvalsliðum fjölmiðla. Stjarna hans mun skína skært í Inkasso-ástríðunni næsta sumar.\"
Þróttur kolféll úr Pepsi-deild karla í sumar og er stefnan sett á að fara beint upp aftur næsta sumar.

Heimild: trottur.is