Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. nóvember 2019 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Þriðja tap Bologna í röð - Caputo með tvennu
Mynd: Getty Images
Sassuolo 3 - 1 Bologna
1-0 Francesco Caputo ('34)
2-0 Jeremie Boga ('68)
2-1 Riccardo Orsolini ('70)
3-1 Francesco Caputo ('75)

Sassuolo lagði lærisveina Sinisa Mihajlovic að velli í dag þökk sé tvennu frá Francesco Caputo.

Fyrsta mark leiksins skoraði Caputo á 34. mínútu og tvöfaldaði Jeremie Boga, sem ólst upp hjá Chelsea, forystuna í síðari hálfleik.

Riccardo Orsolini minnkaði muninn í jöfnum leik en gæði Caputo of mikil og innsiglaði hann sigurinn með glæsilegu marki á 75. mínútu.

Meira var ekki skorað og er Sassuolo í neðri hluta deildarinnar, með 13 stig eftir 11 umferðir. Þetta var þriðja tap Bologna í röð og er liðið með 12 stig, eftir 12 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner