Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 08. nóvember 2019 09:01
Magnús Már Einarsson
Zlatan á leið til AC Milan
Á leið aftur í búning AC Milan.
Á leið aftur í búning AC Milan.
Mynd: Getty Images
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er á leið til ítalska félagsins AC Milan á nýjan leik að sögn Don Garber yfirmanns MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum.

Zlatan spilaði á dögunum sinn síðasta leik með LA Galaxy í MLS-deildinni eftir tvö ár hjá félaginu. Hann er nú samningslaus og mun ganga til liðs við nýtt félag í janúar.

„Zlatan er svo áhugaverður náungi. Hann er 38 ára og AC Milan er að semja við hann, eitt af stærstu félögum í heimi," sagði Garber.

Zlatan þekkir vel til hjá AC Milan en hann skoraði 42 mörk í 61 leik með liðinu í Serie A á árunum 2010 til 2012.
Athugasemdir
banner