Fotbolti.net
08.12.17 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arna Dís og Jasmín Erla í FH (Staðfest)

Arna Dís Arnþórsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir eru komnar Í FH.

Arna Dís Arnþórsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir eru komnar Í FH.

Canon

Mynd: FH

Kvennaboltinn
FH heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Pepsi-deild kvenna næsta sumar. Arna Dís Arnþórsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir skrifuðu í dag undir samninga við félagið.

Arna Dís samdi við Hafnarfjarðarfélagið til tveggja ára á meðan Jasmín Erla skrifaði undir til þriggja ára.

„Þetta er mikið ánægjuefni fyrir okkkur FH-inga vegna þess að hér um mjög öfluga leikmenn að ræða sem styrkja munu FH liðið á næsta keppnistímabili,\" segir í tilkynningu FH.
Arna Dís kemur til FH frá Breiðabliki en þar hefur hún leikið með meistaraflokki frá árinu 2014. Hún á að baki 53 leiki í meistaraflokki í Pepsi-deildinni og bikar og hún hefur leikið 24 leiki með yngri landsliðum Íslands. FH-ingar þekkja vel til Örnu Dísar þar sem hún lék 4 leiki með liðinu sem lánsmaður sumarið 2016i. Arna Dís var ánægð að lokinni undirskrift í dag.

„Ég er mjög ánægð með að vera búin að skrifa undir hjá FH og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir hér. Mér finnst liðið hafa verið á uppleið á undanförnum árum og er viss um að við getum haldið áfram að bæta árangur liðsins í Pepsi-deildinni,\" sagði hún.

Jasmín Erla kemur til FH eftir að hafa leikið með Fylki síðan 2014. Hún hefur leikið 43 leiki með Fylki í úrvalsdeild og bikar og skorað í þeim 10 mörk. Einnig á hún að baki 23 leiki með yngri landsliðunum og hún var á dögunum valin í U23 ára hóp landsliðsins. Jasmín er spennt fyrir komandi keppsnistímabili með FH.

„Ég er mjög ánægð með að vera komin til liðs við FH og hlakka mikið til þess að takast á þetta nýja verkefni. Mér líst mjög vel á aðstöðuna og umgjörðina hjá félaginu og það er greinilega metnaður til þess að halda áfram að bæta árangurinn hjá liðinu,\" sagði hún.

FH, sem endaði í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, hefur hingað Marjani Hing-Glover og Þórdísi Elvu Ágústsdóttur úr Haukum ásamt því að fá Evu Núru Abrahamsdóttur úr Fylki eftir að síðasta tímabil endaði. Nú hafa Jasmín og Arna Dís bæst í hópinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.