Fotbolti.net
08.12.22 - 19:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arteta ætlar ekki að stökkva á markaðinn strax

Arteta ætlar ekki að stökkva á markaðinn strax
Canon

Mynd: EPA

Gabriel Jesus þurfti að fara í aðgerð á hné eftir að hafa meiðst á HM á dögunum.

Jesus hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir Arsenal sem er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en Arteta er ekki tilbúinn til að stökkva á markaðinn til að næla í mann til að fylla skarð Jesus.

 „Áhrif á kaupstefnuna? Þetta hefur áhrif á allt liðið því hann gefur okkur svo mikið. Við verðum að fá tímasetningar betur í ljós, við skoðum möguleikana og reynum að taka rétta ákvörðun," sagði Arteta.

„Við erum með marga leikmenn. Við erum með fullt af yngri leikmönnum. VIð erum með leikmenn sem geta sýnt frammistöðu og stöðugleika til að halda okkar striki eða bæta okkur."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.