09.01.13 - 20:37
Magnús Már Einarsson
Alfred N\'Diaye til Sunderland (Staðfest)

Martin O\'Neill stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images

Martin O\'Neill stjóri Sunderland.

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur keypt miðjumanninn Alfred N\'Diaye frá tyrkneska féalginu Bursaspor.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé í kringum þrjár milljónir punda.
N\'Diaye er varnarsinnaður miðjumaður en hann getur einnig leikið í hjarta varnarinnar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Sunderland.
,,Alfred er sterkur og kraftmikill ungur leikmaður sem gefur okkur meiri breidd. Hann gefur okkur möguleika og ég er ánægður með að við höfum fengið hann til félagsins,\" sagði Martin O\'Neill stjóri Sunderland.