Fotbolti.net
09.01.13 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Hope Akpan til Reading (Staðfest)

Akpan í leik gegn Reading.

Akpan í leik gegn Reading.

Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríumaðurinn Hope Akpan hefur skrifað undir samning til þriggja og hálfs árs við enska úrvalsdeildarfélagið Reading.

Akpan er 21 árs miðjumaður sem yfirgaf unglinga-akademíu Everton fyrir 18 mánuðum og hefur síðan leikið fyrir Crawley í ensku C-deildinni.
Brian McDermott, stjóri Reading, segist ánægður með að hafa krækt í Akpan enda hafi hann fylgst með leikmanninum í mjög langan tíma.

McDermott segir að fleiri félög hafi reynt að krækja í Akpan en um leið og leikmaðurinn vissi af áhuga Reading var það eina liðið sem kom til greina.

Reading er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.