09.01.13 - 09:30
Magnús Már Einarsson
Ricardo Quaresma til Al Ahli (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Portúgalski kantmaðurinn Ricardo Quaresma hefur gert eins og hálfs árs samning við Al Ahli í Dubai.
Þessi 29 ára gamli leikmaður kemur til Al Ahli frá Besiktas en hann rifti samningi sínum í Tyrklandi í síðasta mánuði.
Þessi 29 ára gamli leikmaður kemur til Al Ahli frá Besiktas en hann rifti samningi sínum í Tyrklandi í síðasta mánuði.
Quaresma var ekki í náðinni hjá stjórnarmönnum og þjálfara Besiktas en hann var meðal annars sakaður um að pissa á búningastjóra félagsins á síðasta ári.
Quaresma hefur á ferli sínum meðal annars leikið með Inter, Barcelona, Chelsea og Porto.
Quaresma hefur á ferli sínum meðal annars leikið með Inter, Barcelona, Chelsea og Porto.
Heimild: Reuters
