Fotbolti.net
09.01.17 - 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

David Nugent til Derby (Staðfest)

David Nugent

David Nugent

Canon

Mynd: Getty Images

David Nugent hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Derby en hann kemur til félagsins frá Middlesbrough.
Nugent er búinn að skora eitt mark í fimm leikjum fyrir Boro á leiktíðinni og hafði Aitor Karanka, þjálfari Boro, áður sagt að Nugent mætti yfirgefa félagið.

Derby hefur nú fengið hann til sín eftir að það gekk ekki að fá Chris Martin til baka úr láni frá Fulham.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Derby en þeir fengu Julien de Sart í síðustu viku, einnig frá Middlesbrough.

Talið er að Fulham hafi einnig haft áhuga á Nugent en Derby varð fyrr til en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.