09.01.17 - 16:41
Magnús Már Einarsson
Gunnhildur Yrsa til Valerenga (Staðfest)

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur yfirgefið herbúðir Stabæk og gengið til liðs við Valerenga.
Samningur Gunnhildar við Stabæk var runninn út en hún hefur nú gert samning við Valerenga sem gildir út árið.
Hin 28 ára gamla Gunnhildur er uppalin hjá Stjörnunni en árið 2012 samdi hún við norska félagið Arna-Bjornar.

Gunnhildur er miðjumaður en hún skoraði tíu mörk á tveimur tímabilum sínum með Stabæk.
Gunnhildur er í íslenska landsliðshópnum sem er á leið á EM í sumar en hún hefur skorað fjögur mörk í 34 landsleikjum á ferlinum.
Valerenga endaði í 9. sæti af 12 liðum í norsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en liðið var ekki í fallhættu.